Skiptinemar boðnir velkomnir í viðskiptafræði og hagfræði

 

Þau Kamil Pruchnik frá Póllandi, Filippo Ciccarelli frá Ítalíu og Emilia Gunyk frá Póllandi mættu á kynningu félagsvísindasviðs fyrir erlenda stúdenta fimmtudaginn 7. janúar. Þau eru skiptinemar í grunnnámi í  viðskiptafræðideild og hagfræðideild en samtals komu um 34 erlendir stúdentar í skiptinám í viðskiptafræðideild og 17 nemendur í hagfræðideild.  Kynningin var haldin í HT-103 og bauð Terry Gunnell þau velkomin með sýningu á íslenskum siðum og venjum. Kolbrún Eggertsdóttir kennslustjóri fór yfir helstu atriði varðandi skráningar og vinnulag og að lokum fóru nemendur í  heimsókn á skrifstofu viðskiptafræðideildar og hagfræðideildar þar sem gefin voru svör við ýmsum spurningum varðandi nám við deildirnar.


7.1.2010 12:41


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.