Nýverið var 28 manna nemendahópur frá Danmörku og Svíþjóð á Laugarvatni. Hópurinn er skipaður nemum í Nordisk friluftsliv sem er samstarfsverkefni nokkurra háskóla á Norðurlöndunum þ.á.m. Háskóla Íslands. Nemarnir hafa verið að læra um birtingarmynd útivistar í íslenskri menningu, hvernig útivist er notuð sem vettvangur til að þroska einstaklinginn o.fl.
Hópurinn fór í tvær þriggja daga gönguferðir þar sem þau fengu svo sannarlega að kynnast íslenska veðrinu þegar það er upp á sitt besta, þau fengu m.a. sól og skyggni upp á fleiri tugi kílómetra og snjóbyl með 15 metra skyggni. Nú eru nemendurnir haldnir til síns heima til að hvíla sig og vinna verkefni áður en þau halda til Svíþjóðar til frekara náms.
9.10.2009 12:57
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...
Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Hagfræðitilraunir á...
Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...
Rannsaka áhrif bólusetninga
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður nálægt einni milljón evra,...
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.