Sautján ára framhaldsskólanemi þróar líkan að gervitaug

Verkefnið „Líkan að gervitaug“ bar sigur úr býtum í Landskeppni ungra vísindamanna sem fram fór við Háskóla Íslands á dögunum. Höfundur verkefnisins er Kári Már Reynisson, 17 ára nemandi við Menntaskólann Hraðbraut. Hann verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni ungra vísindamanna í París í haust.

Þar keppir Kári Már við unga og bráðefnilega vísindamenn frá þremur heimsálfum; Evrópu, Ameríku og Asíu. Kári Már er að ljúka stúdentsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut og stefnir á nám í lífefnafræði í Háskóla Íslands í haust. Hann var aðeins 12 ára þegar áhugi hans kviknaði á byggingu gervitaugar sem hugsanlega gæti hjálpað þeim sem orðið hefðu fyrir alvarlegum taugaskemmdum.

Allar götur síðan hefur hann þróað hugmyndina og aukið við þekkingu sína. Leiðbeinandi Kára Más við sigurverkefnið var Hilmar Pétursson, kennari við Menntaskólann Hraðbraut. Til aðstoðar við undirbúning og kynningu verkefnisins verða skólasystur Kára Más, þær Kristrún Ester Kristjánsdóttir og Sigrún Brynja Jensdóttir.

„Líkan að gervitaug“ byggir á hugmynd um hönnun tækis sem geti lesið taugaboð í enda taugar sem hefur farið í sundur, flytja þau ákveðna vegalengd og koma boðunum til skila til líffæris s.s. vöðva eða inn í fjarlægari taugaenda. Lagðar eru fram hugmyndir að því hvernig tengja má að saman lifandi taugavef og dauðan hlut úr ólífrænum efnum og gerviefnum. Í umsögn dómnefndar kemur m..a fram að verkefni Kára sé fullt af hugmyndaauðgi og útfærsluhugmyndir hans frumlegar.

„Hugmyndir eins og þessar hjá mjög ungum vísindamanni á að skoða gaumgæfilega og hvetja hann til frekari dáða á þessu sviði. Hver veit nema upp úr þeim hugmyndum vaxi raunverulegt tæki sem eigi eftir að bæta líf þeirra sem fást við alvarlegar taugaskemmdir.“ Ungir Vísindamenn er liður í áætlun Evrópusambandsins sem er ætlað að efla tengsl vísinda og samfélags.

Markmið keppninnar er að efla hæfni ungs fólks til að vinna að rannsóknarverkefnum og stuðla að frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda. Um 40 lönd taka þátt í keppninni að þessu sinni, sem nú er haldin í 21.skipti. Auk Evrópulanda senda Bandaríkin, Kína og Japan fulltrúa til keppninnar. Í dómnefnd landskeppninnar á Íslandi sitja í ár þeir Stefán B. Sigurðsson prófessor, fráfarandi forseti læknadeildar HÍ og nýr rektor Háskólans á Akureyri, Sigurður Brynjólfsson prófessor á verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ og Leifur Hauksson, dagskrárgerðarmaður RÚV.


21.6.2009 21:34

deila á facebook
Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...

Tækifæri í samstarfi um...

Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.

Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá...