Samvinna lagadeilda Háskóla Íslands og Árósaháskóla í skattamálum

Lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hafa hrundið af stað sérstöku meistaranámi í skattarétti og reikningsskilum. Námið, sem er 90 einingar, hófst haustið 2009.

Lagadeild Háskóla Íslands hefur í samvinnu við lagadeild háskólans í Árósum samið svo um að skattasérfræðingar síðarnefnda háskólans tækju að sér og sæju um kennslu í einu námskeiðinu í meistaranáminu, þ.e. alþjóðlegum skattarétti, sérstökum hluta. Þetta framtak er sérstaklega styrkt af Árósaháskóla. Framkvæmdinni verður hagað með þeim hætti að danskur prófessor og aðrir fyrirlesarar munu koma hingað til lands og kenna í námskeiðinu. Kennslan fer fram á ensku. Hún hefst í byrjun mars og henni lýkur í byrjun aprílmánaðar.

Jan Pedersen, prófessor kemur fyrstur og mun fjalla um milliverðlagningu. Síðan koma Anders Nörgaard og Lars Kærgård og kenna um ESB skattareglur og dóma. Loks mun Ann Rask Vang flytja fyrirlestra um gagnkvæma aðstoð í skattamálum. Þau síðarnefndu eru öll doktorsnemar.

Samvinna þessi markar ákveðin tímamót í starfsemi lagadeildar Háskóla Íslands sem stefnt er að að haldi áfram og nái til fleiri fræðagreina til gagns fyrir báða háskóla.

2.3.2010 14:44

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.