Samkeppnispróf fyrir nýnema í hjúkrunarfræði verða haldin í desember

Við skráningu nýnema í vor lá fyrir að metfjöldi myndi sækja um nám til BS gráðu í hjúkrunarfræði skólaárið 2009-2010. Núna eru 224 nýnemar skráðir
til náms og er það meiri fjöldi en deildin hefur tök á að taka í klínískt nám í hjúkrunarfræði en sá fjöldi hangir saman við fjölda klínískra námsplássa á heilbrigðisstofnunum.

Á deildarfundi hjúkrunarfræðideildar sem haldinn var 19. júní sl. var ákveðið að grípa til fyrirvara sem fram koma í kennsluskrá en þar segir: Vera kann að beita þurfi fjöldatakmörkun í fleiri greinum háskólaárið 2009-2010 en ákvörðun liggur fyrir um við útgáfu þessarar kennsluskrár. Deildarfundur samþykkti að leggja til við háskólaráð að í desember 2009 yrðu haldin samkeppnispróf til að takmarka þann fjölda sem öðlast rétt til áframhaldandi náms á vormisseri 1. árs 2010 og skal sá fjöldi miðast við 120 nemendur.

Háskólaráð tók afstöðu til tillögu deildarinnar á fundi sínum þann 27. ágúst. Þar var tillagan samþykkt.

Það er því ljóst að í desember næstkomandi verða haldin samkeppnispróf meðal nýnema í hjúkrunarfræði þar sem 120 öðlast rétt til áframhaldandi náms á vormisseri.

Reglur um val stúdenta til BS náms í hjúkrunarfræði skólaárið 2009-2010


28.8.2009 09:01


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.