Sameiginleg doktorsgráða í sálfræði frá Sálfræðideild HÍ og Taugasálfræðideild Háskólans í Freiburg í Þýskalandi
Fimmtudaginn 5. nóvember mun Dr. Styrmir Sævarsson, taugavísindamaður, kynna doktorsverkefni sitt: Framfarir í meðferð gaumstols.
Dr. Styrmir stundaði doktorsnám samhliða við Taugasálfræðideild Háskólans í Freiburg í Þýskalandi og við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Um er að ræða sameiginlega doktorsgráðu háskólanna beggja og fór doktorsvörnin fram við Háskólann í Freiburg 22. október sl.
Leiðbeinendur í verkefninu voru Dr. Árni Kristjánsson, dósent við Sálfræðideild Háskóla Íslands og Prof. Dr. Ulrike Halsband, yfirmaður Taugasálfræðideildarinnar í Freiburg. Auk þeirra var Prof. Dr. Cornelius Weiller, stjórnandi taugadeildar sjúkrahúss Háskólans í Freiburg í doktorsnefnd.
Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15:00 í Hátíðasal Háskóla Íslands og fer fram á íslensku. Dr. Jörgen L. Pind, forseti Sálfræðideildar, stjórnar athöfninni.
Ágrip úr rannsókn
Verkefnið fjallar um gaumstol og hvernig má hjálpa sjúklingum sem þjást af þessum kvilla. Gaumstol er algeng skynröskun í kjölfar heilaskaða, oftast vegna heilablóðfalls í hægra heilahveli og lýsir sér venjulega að þolandi á erfiðleikum með að taka eftir áreitum til vinstri, til dæmis þegar einhver talar frá vinstri hlið og sjúklingurinn verður ekki var við viðmælandann. Í verkefninu voru helstu einkenni gaumstols könnuð en jafnframt voru gerðar rannsóknir á meðferðarúrræðum við gaumstoli, svo sem strendingsaðlögun, hálstitrun, ásamt samþættingu ólíkra meðferðarúrræða. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru eftirfarandi: Hugrænt álag getur dregið úr jákvæðum áhrifum strendingsaðlögunar á sjónleit gaumstolssjúklinga. Meðferðaráhrif strendingsaðlögunar má styrkja með því að beita hálstitrun á sama tíma. Þar að auki virðist sem samtvinnuð meðferðarúrræði sem er beitt samtímis skila betri árangri en úrræði sem er beitt á annan hátt og standa vonir til að niðurstöður ritgerðarinnar geti leitt til betri lífsgæða hjá þeim sem þjást af gaumstoli.
Um nýdoktorinn
Styrmir Sævarsson er fæddur í Reykjavík þann 20. apríl 1976. Hann lauk stúdentsprófi frá náttúrusviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti árið 1997 og BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2003. Hann lauk M.Sc. prófi í taugavísindum og hugfræði frá Háskólanum í Utrecht í Hollandi árið 2006 og varði doktorsritgerð sína 22. október 2009. Foreldrar Styrmis eru Sævar Geirsson, B.Sc. í tæknifræði, og Hafdís Björnsdóttir, ljósmóðir. Sambýliskona Styrmis er Aurélie Kley.
2.11.2009 13:30



