Ritið tileinkað Rómönsku Ameríku

Fyrsta hefti Ritsins 2009, rits Hugvísindastofnunar, er helgað Rómönsku Ameríku - fjölbreyttu mannlífi hennar og auðugri menningu. Í heftinu birtast ellefu greinar, þar af sex þemagreinar og þrjár utan þema.  Einnig birtast tveir stuttir bókmenntatextar eftir mexíkóska höfunda.

Í Ritinu er m.a fjallað um kvikmyndagerð í Rómönsku Ameríku og þann einfaldaða veruleika sem endurspeglast í kvikmyndum samtímans. Rýnt er í hina margræðu skáldsögu mexíkóska rithöfundarins Carlosar Fuentes, Terra nostra. Flókinn heimur landamæra Mexíkó og Bandaríkjanna er eitt viðfangsefna og líf og verk nunnunnar Sor Juana Inés del la Cruz frá Nýja Spáni sem hélt uppi vörnum fyrir tjáningafrelsi kvenna á 17.öld. Fjallað er um hinn umdeilda og orðhvassa forseta Venesúela Hugo Chavez og stjórnarhættir hans settir í samhengi við arfleifð "sterka mannsins" í Rómönsku Ameríku. Síðasta þemagreinin er helguð Haítí og er saga eyjunnar rakin frá 1697 til 2004. Einnig eru í heftinu þrjár greinar utan þema og tveir stuttir, þýddir bókmenntatextar eftir mexíkóska höfunda.

Yfirlit greina:

Rómanska Ameríka - Ásdís R. Magnúsdóttir og Björn Þorsteinsson

Þema greinar

Speglun og spegilmyndir. Saga kvikmyndagerðar í Rómönsku Ameríku - Hólmfríður Garðarsdóttir

Lesið í Terra nostra eftir Carlos Fuentes - Jón Thoroddsen

Þið hlustið alrdei á okkur. Landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna í bókmenntum Mexíkana og Chicanóa - Kristín Guðrún Jónsdóttir

Undir brúnni - Rosaria Sanmiguel (þýð. Kristín Guðrún Jónsdóttir)

Sor Juana svarar fyrir sig. Skáld, fræðikona og femínisti á 17.öld - Kristín I. Pálsdóttir

Hugo Chávez, hinn sterki maður - Stefán Á. Guðmundsson

Núllstilling á Haíti - Peter Hallward

Röðin - Luis Humberto Crosthwaite (þýð. Kristín Guðrún Jónsdóttir)

Aðrar greinar

Kynlífspíslir Bess í Breaking the Waves. Ævintýri á hvíta tjaldinu í anda H.C Andersen - Annette Lassen

Margkunnar konur og óborin börn. Úr kvenlegum reynsluheimi á miðöldum - Auður Ingvarsdóttir

Málfrelsi og dönsku Múhameðsteikningarnar - Róbert H. Haraldsson

Panta bókina


2.11.2009 13:13


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...