Rannsóknir í markaðsfræði – ný bók eftir Þórhall Örn Guðlaugsson
Út er komin bókin Rannsóknir í markaðsfræði eftir Þórhall Örn Guðlaugsson.
Spurður um ástæður þessa framtaks segir Þórhallur að bókin eigi þó nokkurn aðdraganda en hún hefur verið í vinnslu í ein þrjú ár. Markmiðið með útgáfunni er að gera rannsóknir í markaðsfræði aðgengilegri en nú er. Markaðsfræðin hefur af mörgum fyrst og fremst verið álitin hagnýt grein sem hefur það hlutverk að stuðla að því að fyrirtæki nái betur markmiðum sínum. Rannsóknir í greininni eiga sér þó langa sögu og hafa verið að eflast mikið hér á landi. Víst er að sú þróun mun halda áfram ef marka má þann fjölda nemenda sem stundar rannsóknartengd framhaldsnám í markaðsfræði. Þessi bók er ekki síst hugsuð fyrir þá, en einnig alla þá sem vilja kynna sér ólíkar rannsóknaraðferðir í greininni.
Að lokum telur Þórhallur að lesendur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi að því gefnu að rannsóknir á sviði markaðsfræði séu þeim áhugaverðar. Í bókinni, sem er 213 síður, eru sjö greinar um ólík viðfangsefni, s.s. atferlisgreiningu, þáttagreiningu, fyrirtækjamenningu, staðfærslu og samkeppnishæfni, ímyndarmælingar, markaðshneigð, þjónustumælingar og þjónustumat. Sumar greinarnar fást við hugtök á meðan í öðrum er verið að vinna með tölur og gögn.
Meðhöfundar að einstaka greinum eru þeir Art Schalk viðskiptafræðingur, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent, Gunnar Magnússon viðskiptafræðingur, Haukur Freyr Gylfason aðjúnkt og Valdimar Sigurðsson dósent. Bókarkápan er byggð á verkinu Vatnsorka eftir Þorgeir Guðlaugsson.
Þórhallur Örn Guðlaugsson er dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
10.12.2009 13:54



