Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd fékk styrk frá Sumargjöf
Barnavinafélagið Sumargjöf afhenti Rannsóknasetri í barna- og fjölskylduvernd (RBF) styrk til rannsóknar um börn af erlendum uppruna. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta en Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað fyrsta sumardag árið 1924.
Styrkurinn er veittur fyrir verkefnið Börn af erlendum uppruna og hefur RBF hafið fyrsta hluta þessa rannsóknarverkefnis en sú rannsókn snýr að flóttabörnum.
Markmið rannsóknarinnar er að fá innsýn inn í líf barna flóttamanna á Íslandi. Leitast verður við því að fá svör við spurningum eins og hvaða áhrif það hefur á börnin að hafa verið á flótta og flúið heimaland sitt, hvernig þeim gangi að aðlagast aðstæðum á Íslandi, hvort þau verði fyrir fordómum, hvernig þeim gangi að tengjast öðrum börnum og hvort börnin líti á sig sem flóttabörn í daglegu lífi. Gefin verður út skýrsla með niðurstöðum rannsóknarinnar en ráðgert er m.a. að hún verði aðgengileg einstaklingum sem vinna með börnum flóttamanna.
Samstarfsaðili RBF að rannsókninni sem snýr að flóttabörnum er Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Vefsíða Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd

