Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr
Á vegum lagadeildar Háskóla Íslands hefur verið sett á laggirnar Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni. Stofnuninni er ætlað að vera vettvangur lögfræðirannsókna- og þróunarstarfs í málefnum fjölskyldna og barna í þverfaglegu samstarfi við önnur fræðasvið og rannsóknarstofnanir sem fjalla um fjölskyldumálefni.
Dr. Ármann Snævarr er fyrrum prófessor, rektor Háskóla Íslands og dómari við Hæstarétt Íslands. Hann er einn öflugasti fræðimaður á Íslandi í fjölskyldurétti og fjölskyldufræðum og hefur ritað helstu grundvallarrit á þessum réttarsviðum. Þá hafði Ármann um áratugaskeið barist fyrir því að komið yrði á fót þverfaglegri rannsóknarstofnun um málefni fjölskyldunnar. Háskóli Íslands og lagadeild binda vonir við að hin nýja Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni muni gegna lykilhlutverki á þeim umbrotatímum sem blasa við í íslensku samfélagi. Það er brýnt að rannsaka með markvissum hætti hvert stefnir í fjölskyldumálefnum og hvernig staðið verður vörð um velferðarþjónustu og hagsmuni barna og fjölskyldunnar.
Rannsóknarstofnunin mun einbeita sér að lögfræðirannsóknum á sviði sifjaréttar, hjúskapar- og sambúðarréttar, barnaréttar og barnaverndarréttar. Þá mun stofnunin skapa vettvang fyrir þverfaglegar rannsóknir á sviði lögfræði og annarra fræðasviða í sem víðustu samhengi, m.a. frá sjónarhóli allra þátta félagsvísinda, heilbrigðisvísinda, menntavísinda, heimspeki og siðfræði. Rannsóknarstofnunin mun einnig m.a. stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og taka þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum, efla tengsl rannsókna og kennslu á háskólastigi um fjölskyldumálefni og sinna ýmsum þjónustuverkefnum.
Stjórn stofnunarinnar skipa Hrefna Friðriksdóttir formaður og lektor í sifja- og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands, Erla Kolbrún Svavarsdóttir prófessor á heilbrigðisvísindasviði, Guðrún Kristinsdóttir prófessor á menntavísindasviði, Sigrún Júlíusdóttir prófessor á félagsvísindasviði og Vilhjálmur Árnason prófessor á hugvísindasviði. Settar hafa verið reglur um stofnunina sem mun hafa aðsetur í Lögbergi. Þá verður ráðinn forstöðumaður sem sinna mun daglegum rekstri.
(Á myndinni eru frá vinstri: Sigrún Júlíusdóttir, Vilhjálmur Árnason, Erla Kolbrún Svavarsdóttir, Hrefna Friðriksdóttir, Ármann Snævarr, Ólafur Þ. Harðarson, Guðrún Kristinsdóttir, Björg Thorarensen og Kristín Ingólfsdóttir).
16.9.2009 11:54



