Rannsókn kennara við Tannlæknadeild vekur mikla athygli
Nýlega var birt í tímaritinu American Journal of Orthodontics and Dentofacial Orthopedics, sem er eitt virtasta tímarit heims á sviði tannréttingafræða, grein eftir Teit Jónsson, lektor, Sigurjón Arnlaugsson, lektor, Sigurð Rúnar Sæmundsson, dósent, og Þórð Eydal Magnússon, prófessor emeritus.
Í greininni Development of occlusal traits and dental arch space from adolescence to adulthood: A 25-year follow-up study of 245 untreated subjects er greint frá niðurstöðum rannsóknar sem þeir gerðu á þróun bitskekkju. Í úrtakshópnum voru einstaklingar, sem skoðaðir voru sem unglingar á áttunda áratugnum, en fóru ekki í tannréttingameðferð. Sami hópur var skoðaður aftur 25 árum síðar og þróun tann- og bitskekkju greind hjá 245 fulltenntum einstaklingum.
Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að lítið var um að bit versnaði hjá þeim sem höfðu eðlilegt bit við upphaf könnunarinnar. Hins vegar var nokkuð algengt að vissar tegundir tannskekkju og bitvandamála hefðu lagast að einhverju leyti. Rannsóknin þykir mikilvægt framlag á þessu sviði og var sérstök athygli vakin á henni af ritstjóra tímaritsins sem taldi hana marka tímamót, auk þess sem hún fékk hæstu einkunn á öllum sviðum hjá ritrýni.

