Rannsókn á sumarexemi í útfluttum hrossum
Í maí voru flutt tvö fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þar sem Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur og Mareike Heimann dýralæknir og doktorsnemi fjölluðu um kerfis- og staðbundið ónæmissvar í sumarexemi í hestum.
Fólk í þróuðum iðnríkjum er nánast algerleg laust við sníkjudýrasýkingar og hefur það verið tengt við mikla aukningu á ofnæmi og sjálfsofnæmissjúkdómum. Ónæmiskerfi spendýra hefur þróast frá ómunatíð til að takast á við sníkjudýr ekki síður en aðra sýkla. Lykilatriði í ónæmissvari gegn sníkjudýrum er sterk bælistjórnun til að hamla gegn vefjaskemmdum. Þessi bæling er einmitt það sem fer úr skorðum í ofnæmi og sjálfsofnæmi. Nú hefur komið í ljós að ormasýkingar hafa einnig áhrif á ofnæmi í hrossum.
Sumarexem er IgE mótefnamiðlað ofnæmi í hrossum gegn prótínum úr smámýi (Culicoides spp) sem lifir ekki á Íslandi. Ofnæmið er vandamál í íslenskum hestum á erlendri grund. Exemið er mun algengara hjá íslenskum hestum sem fæddir eru á Íslandi og fluttir út, en hjá íslenskum hestum sem fæddir eru erlendis. Munurinn virðist liggja í stjórnun á boðefninu IL-4 sem ræsir IgE myndun. Hestar fæddir hér eru líklegri en íslenskir hestar fæddir í Evrópu til að svara smámýinu með aukningu í IL-4 myndandi T-frumum, IgE framleiðslu og exemi.
Líkt og IgE miðlað ofnæmi þá er vörn gegn iðraormum á sömu braut ónæmissvars með framleiðslu á IL-4 og IgE. Hross eru krónískt sýkt af iðraormum frá unga aldri og bregðast við því með stöðugri framleiðslu á IL-4 og IgE. Hestar á Íslandi eru meira ormasýktir og hafa hærra heildar IgE magn í blóði en íslenskir hestar í Sviss, en sérvirka ormasvarið hjá þeim er undir mjög öflugri bælistjórn.
Eftir útflutning dregur verulega úr ormasýkingu, heildar IgE lækkar og einnig lækka viðeigandi stjórnboðefni. Þessi röskun á stjórn ónæmissvarsins hjá nýlega útfluttum hestum, sem á sama tíma eru í fyrsta skipti bitnir af smámýi, gæti átt þátt í því að þeir ráða ekki við að bæla IL-4. Þar af leiðandi mynda þeir frekar ofnæmissvar gegn flugunum en hestar sem alist hafa upp með þeim og eru með stjórnun á ónæmissvari í góðu jafnvægi.
Rannsóknir á sumarexemi í íslenskum hestum er samstarfsverkefni Keldna og dýrasjúkdómadeildar Háskólans í Bern í Sviss. Verkefnið hófst árið 2000 og er styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Rannís, Rannsóknasjóði Háskóla Íslands, Svissneska vísindasjóðnum og fleiri svissneskum sjóðum.
Heimildir:
- A.D. Wilson, L. Harwood, S. Torsteinsdottir, E. Marti (2006). Production of monoclonal antibodies specific for native equine IgE and their application to monitor total serum IgE responses in horses with insect bite hypersensitivity. J. Vet. Immunol. Immunopathol. 112;156-170.
- Hamza, E., Doherr, M.G., Bertoni, G., Jungi, T.W., Marti. E. (2007). (2007) Modulation of allergy in Icelandic horses is associated with a change in IL-4 producing T cells. Int. Arch Allergy Immunol. 144, 325-337 .
- Hamza, E., Wagner, B., Jungi, T.W., Mirkovitch, J. and Marti, E. (2008). Reduced incidence of insect-bite hypersensitivity in Icelandic horses is associated with a down-regulation of interleukin-4 by interleukin-10 and transforming growth factor-β1. Vet. Immunol.Immunopathol. 122, 65-75.
- Hamza E., Torsteinsdottir,S., Eydal, M., Frey, C., Mirkovitch, J., Brcic, M., Bettina Wagner, B., Wilson, D., Jungi, T. W., Marti, E. Increased incidence of allergy following movement of horses from a high to low encoparasite environment. Submitted 2009
3.6.2009 10:00



