Prófessor Athol J. Carr heldur námskeið í jarðskjálftaverkfræði

Prófessor Athol J. Carr heldur námskeið í jarðskjálftaverkfræði

Námskeið í jarðskjálftaverkfræði á vegum Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík verður haldið á tímabilinu 25. ágúst til og með 1. september næstkomandi. Námskeiðið, sem er metið til 6 ECTS eininga, er hluti af náms­framboði skólanna á sviði byggingarverkfræði til MS-prófs. Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum tölvustuddar aðferðir sem notaðar eru við hönnun og greiningu mannvirkja á jarðskjálfta­svæðum.  Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku.

Fyrirlesari:  Prófessor Athol J. Carr

Helstu atriði fyrirlestranna: Modelling of elastic and inelastic systems, time history analysis, push-over analysis, hysteresis models, local and global ductility, P-d effects, soil-structure interaction, structural control and seismic risk.

Fyrirkomulag: Áhersla er lögð á notkun tölvu við greiningu og hönnun mannvirkja. Hugbúnaðar­pakkann Ruaumoko, sem þróaður er af prófessor Carr fyrir ólínulega jarðskjálftagreiningu, verður notaður í tengslum við sýnidæmi og hagnýt verkefni. Þátttakendur fá geisladisk með forritinu og aðgang að fyrirlestrum á pdf-sniði.

Miðað er við að þeir nemendur sem óska eftir því að fá námskeiðið metið til eininga leysi verkefni undir umsjón kennara og skrifi skýrslu um þau auk þess að þreyta skriflegt próf.

Æskileg undirstaða: FE-greining, sveiflugreining og undirstöðuatriði í jarðskjálftaverkfræði.

Staður: Fyrirlestrarnir verða haldnir í Háskólanum í Reykjavík, Höfðabakka 9.

Tími: Fyrirlestrarnir verða haldnir dagana 25., 26. og 27. ágúst svo og dagana 31. ágúst og 1. september. Miðað er við að þeir hefjist kl. 15:00 og þeim ljúki kl. 18:00.

Þátttökugjald og skráning: Miðað er við að þeir sem óska einungis eftir því að sækja fyrirlestrana skrái sig hjá Eyþóri Rafni Þórhallssyni (eythor@ru.is) og greiði kr. 10.000 í þátttökugjald.

Þeir sem óska eftir því að fá námskeiðið metið til eininga skrá þátttöku í viðkomandi skóla.

Umsjón og kennsla:

Athol J. Carr, University of Canterbury og Háskóla Íslands

Eyþór Rafn Þórhallsson, Háskólanum í Reykjavík (eythor@ru.is, sími: 599 6484 eða 825 6484)

Ragnar Sigbjörnsson, Háskóla Íslands (ragnar.sigbjörnsson@hi.is, sími 525 4141 eða 897 2718)

Námskeiðið er öllum opið. 


19.8.2009 14:45


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.