Peysan mín, nýtt sprotafyrirtæki verkfræðinema



Frjóar hugmyndir og verkfræðileg nálgun er góð blanda og ekkert nýtt að nemendur í verkfræðinámi HÍ stofni sprotafyrirtæki. Þetta er þó í fyrsta sinn svo vitað sé að fyrirtæki þeirra byggi á prjónaskap. En hugmynd þeirra er að viðskiptavinurinn geti pantað sérprjónaða peysu í gegnum netið.

Það var á námskeiðinu Stjórnun fyrirtækja undir leiðsögn Hauks Inga Jónassonar lektors, sem hugmyndin að fyrirtækinu Peysan mín varð til. Í því árferði sem nú er fannst nemendum við hæfi að byggja á einhverju séríslensku fyrirbæri og hvað er íslenskara en lopapeysan? Í fyrstu átti verkefnið einungis að standa á meðan á námskeiðinu stóð en viðtökur eru vonum framar og því sjá aðstandendur fyrirtækisins fram á áframhaldandi rekstur og jafnvel aukin umsvif. 

Stofnendur fyrirtækisins eru á myndinni hér til hliðar og heita; Elvar Þór Hjörleifsson, Eymundur Sveinn Leifsson, Gunnar Skúlason, Kristín Björg Sveinsdóttir, Maren Lind Másdóttir og Teitur Birgisson, öll nemendur í iðnaðarverkfræði ásamt Ómari Þorvaldi Kristinssyni nemanda í tölvunarfræði.

Slóð á vefsíðuna Peysan mín: http://www.peysanmin.com/

Sjá einnig frétt á Mbl.is um Peysuna mína