Orkuskólinn REYST settur í annað sinn
Orkuskólinn REYST var settur í annað sinn í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur í gærmorgun. Nú eru 14 meistaraprófsnemendur að hefja nám og mun hópurinn útskrifast í janúar 2011. Nemendurnir eru frá sjö löndum í fimm heimsálfum, þar af sjö íslenskir, og hafa margvíslegan bakgrunn, svo sem jarðfræði,umhverfisfræði, verkfæði og viðskiptafræði. 13 nemendur víðsvegar að úr heiminum eru nú að hefja síðara skólaár sitt. Skólinn er samstarfsverkefni Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Í ávarpi við skólasetninguna sagði Hjörleifur B. Kvaran forstjóri OR skólann þegar hafa sannað sig. Sannað sig gagnvart stúdentunum sjálfum, innan íslensks háskólasamfélags og gildi sitt fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Það verði síðan í höndum útskrifaðra nemenda að sanna að gildi hans fyrir þróun umhverfis- og orkumála. Auk Hjörleifs fluttu ávörp þau Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík og Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda- og kennslu Háskóla Íslands. Fulltrúi fyrsta árgangs REYST nemenda, Jón Örn Jónsson, bauð nýja nemendur velkomna áður en stjórnarformaður OR, Guðlaugur G. Sverrisson sagði skólann formlega settan.
Í ávarpi forstjóra OR kom fram að skólinn sé enn í þróun. Nú í ár flytjist aukinn hluti kennslunnar út í háskólana og efli með því vísindastarfið þar. Þá horfi það einnig til sparnaðar með bættri nýtingu aðstöðunnar í skólunum.
7.8.2009 08:48



