Orka, umhverfi og nytjar, sumarnámskeið kennt 25.-29. maí

Námskeiðið UMV004M Orka, umhverfi og nytjar, verður kennt dagana  25.-29. maí sem eitt af þeim sumarnámskeiðum sem Háskóli Íslands býður upp á fyrir nemendur sína. Efni námskeiðsins nýtist sérstaklega nemendum í verkfræði og raunvísindum.  Efnistök námskeiðsins miðast við nemendur í lok BS náms eða upphafi MS náms.

Stundartöflu og efnisatriði námskeiðsins má sjá hér.

Umsjónarkennari námskeiðsins er Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræðideild.  Kennarar námskeiðsins eru sérfræðingar Landsvirkjunar og Landsvirkjunar Power ásamt kennurum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.  Fyrirtækin munu greiða kostnað sérfræðinga sinna við kennslu námskeiðsins og leggja þannig sitt af mörkum til samfélagsins og hvetja jafnframt önnur fyrirtæki og stofnanir, sem hafa til þess burði, að koma að samstarfi við háskólana við þær aðstæður sem nú eru uppi.


20.5.2009 10:35


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.