Opnun Sérfræðiseturs í ævilangri náms- og starfsráðgjöf

Í dag 29. október verður Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf formlega opnað og í tilefni af því verður heimasíða setursins tekin í notkun, www.saens.hi.is.

Um þessar mundir er stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf ofarlega á baugi jafnt hérlendis sem erlendis og myndar Sérfræðisetrið umgjörð um margvísleg rannsóknarverkefni tengd stefnumótun og þróun í náms- og starfsráðgjöf.

Evrópusambandið leggur mikla áherslu á eflingu náms- og starfsráðgjafar og í símenntunarstefnu sambandsins skipar náms- og starfsráðgjöf mikilvægan sess. Vegna þessarar auknu áherslu var samstarfsnet 27 Evrópulanda um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf stofnsett árið 2007, European Lifelong Guidance Policy Network. Ísland tekur þátt í þessu verkefni og leiðir einn vinnuhóp um aðgengi að náms- og starfsráðgjöf ásamt Frökkum. Sérfræðisetrið sér um framkvæmd verkefnisins í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Þátttaka í þessu verkefni gefur einstakt tækifæri til að safna gögnum og upplýsingum um aukið aðgengi og aukinn rétt fólks til náms- og starfsráðgjafar.

Formaður stjórnar SAENS er Dr. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, dósent í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Verkefnisstjóri setursins er Guðrún Birna Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi.

Heimasíða Sérfræðisetursins er www.saens.hi.is.


29.10.2009 09:41


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.