Ólíkar andlegar æfingar í hugvísindum
Doktorsdagur Hugvísindasviðs 23. október í Aðalbyggingu HÍ
Næstkomandi föstudag 23. október kl. 13-16 verður efnt til svonefnds doktorsdags á Hugvísindasviði í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Alls munu 20 doktorsnemar og 1 meistaranemi flytja fyrirlestra sem eru byggðir á rannsóknum á fjölbreyttu sviði hugvísinda.
Sex málstofur verða haldnar:
- enska,
- fornleifafræði,
- íslenskar bókmenntir,
- íslensk málfræði,
- sagnfræði/heimspeki,
- guðfræði/kirkjan.
Af einstökum fyrirlestrum má nefna að í málstofu í ensku verður fjallað um stöðu enskunnar í íslensku menntakerfi og viðskiptalífi. Í málstofu um kirkju og guðfræði er fjallað um hjálpræðisstef í kvikmyndum og leiðtogahlutverkið í kirkjunni í ljósi nútíma stjórnunarfræða. Rannsóknir á íslenskum framburðarmállýskum eru í deiglunni í málstofu um málfræði og sagt er frá þróun „vera að“ + nafnháttar í íslensku. Í málstofu um heimspeki og sagnfræði er undrun tekin fyrir, en undrun er líklega eitt af helstu einkennum upplifunar af íslenskri náttúru og í öðru erindi er greint frá rannsókn á geðheilbrigðissögu þjóðarinnar frá 1838-1910. Nonnabækur Jóns Sveinssonar eru til umfjöllunar í málstofu um íslenskar bókmenntir þar sem þær eru m.a. bornar saman við sögur af Róbínson Krúsó og fjallað er um heimsborgarann og þjóðskáldið Grím Thomsen. Loks má nefna fyrirlestur í fornleifafræði þar sem greint er frá rannsókn á því hvernig menn iðkuðu sína trú í heiðni á Íslandi.
- Dagskrá og útdrættir (pdf)
Hver málstofa er með 3-4 erindum sem hvert um sig tekur um 15 mínútur í flutningi. Málstofurnar eru öllum opnar.
20.10.2009 16:57



