Nýtt rit um mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og bókaútgáfan Codex hafa gefið út ritið Mannréttindasamningar Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið styrkti útgáfu ritsins.
Í ritinu er fjallað um helstu mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna sem Ísland er aðili að, meginreglur þeirra og túlkun. Lýst er framkvæmd nefnda sem hafa eftirlit með samningunum og álitum þeirra í kærumálum um mannréttindabrot. Sérstaklega er varpað ljósi á stöðu samninganna að íslenskum rétti og krufin áhrif þeirra á lagasetningu og lagaframkvæmd sem hafa aukist stórlega síðustu tvo áratugi. Ritið hefur hagnýtt gildi fyrir bæði laganema og lögfræðinga sem vinna í íslensku réttarkerfi eða stjórnsýslu en ekki síður fyrir alla þá sem hafa áhuga á alþjóðlegum og innlendum reglum um vernd mannréttinda og tengslum þar á milli.
Höfundar efnis eru sérfræðingar á sviði mannréttinda og hafa víðtæka reynslu af störfum og rannsóknum tengdum þeim viðfangsefnum sem þeir rita um. Þeir hafa m.a. starfað á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, við kennslu og rannsóknir í mannréttindum við innlenda og erlenda háskóla og hjá stofnunum sem annast framkvæmd mannréttindasamninga að innanlandsrétti. Höfundar eru:
Björg Thorarensen, Elsa S. Þorkelsdóttir, Guðmundur Alfreðsson, Hrefna Friðriksdóttir, Jakob Þ. Möller, Kjartan Bjarni Björgvinsson, Kristín Benediktsdóttir og Róbert R. Spanó.
Útsölustaðir ritsins eru m.a. bóksala Úlfljóts í Lögbergi, Bóksala stúdenta í Háskólatorgi, verslanir Pennans / Eymundssonar og Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi.
4.2.2010 09:14



