Nýsköpunarverðlaun forseta íslands 2010

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent að Bessastöðum í dag. Tvö þeirra fimm verkefna sem tilnefnd höfðu verið til verðlauna voru unnin af nemendum Háskóla Íslands:

  • Arfgeng heilablæðing – Ný tilgáta um sjúkdómsmyndun byggð á rannsókn um genatjáningu, sem unnið var af Birni Þór Aðalsteinssyni, nemanda við læknadeild Háskóla Íslands
  • Fornleifar á eyðidal: skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal, unnið af Ástu Hermannsdóttur nemanda við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

Verkefnið sem hlaut Nýsköpunarverðlaunin að þessu sinni var Súrefnis- og hjartsláttarnemi, unnið af Ásgeiri Bjarnasyni er stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi. Háskóli Íslands óskar Ásgeiri til hamingju með verðlaunin.

Verkefnin sem tilnefnd voru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2010:

Arfgeng heilablæðing. Björn Þór Aðalsteinsson, nemandi við læknadeild Háskóla Íslands

Fornleifar á eyðidal: skráning og kynning á fornum minjum í Seljadal. Ásta Hermannsdóttir, nemandi við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn. Gunnar Steinn Valgarðsson, nemandi við Háskólann í Reykjavík

Súrefnismettunar- og hjartsláttarnemi. Ásgeir Bjarnason, nemandi við Háskólann í Tampere, Finnlandi

Arctic snakk. Edda Jóna Gylfadóttir, Guðrún Björk Jónasardóttir, Helga Björg Jónasardóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir, nemendur við Listaháskóla Íslands.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2009 voru veitt nemendum við Háskóla Ísland fyrir verkefni í sjúkraþjálfun, rafmagns- og tölvuverkfræði og véla- og iðnaðarverkfræði fyrir þróun búnaðar til að þjálfa fötluð börn sem bundin eru í hjólastól. Verkefnið nefndist Gönguhermirinn.

Nýsköpunarverðlaun námsmanna
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

 


2.3.2010 19:24


deila á facebook
Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...

Tækifæri í samstarfi um...

Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.

Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá...