Nýsköpunarfyrirtækið Oxymap í samstarf við læknadeild

Háskóli Íslands og Oxymap ehf. gerðu nýverið með sér samning um rannsóknir á sviði súrefnismælinga og mun Oxymap veita Háskólanum styrk vegna stöðu sérfræðings við læknadeild. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Oxymap og Guðmundur Þorgeirsson, forseti læknadeildar undirrituðu samninginn.

Viðstaddir voru Jón Atli Benediktsson og Einar Stefánsson, frumkvöðlar að Oxymap, Valdemar Olsen, fjármálastjóri Oxymap og Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sem hefur ásamt fleiri fjárfestum gengið til liðs við Oxymap.
 
Við undirritunina gat rektor þess að starf Oxymap væri glæsilegt dæmi um grunnrannsóknir og hagnýtingu þeirra, þverfræðilegt samstarf framúrskarandi vísindamanna í rafmagnsverkfræði og augnlæknisfræði, stúdenta og atvinnulífsins, og nýsköpun sem byggir á háskólastarfsemi.

Frumkvöðlar að Oxymap eru Einar Stefánsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Jón Atli Benediktsson, prófessor við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir þeirra hafa verið til umfjöllunar víða um heim en þeir tveir hafa í félagi við aðra þróað súrefnismæli fyrir augnbotna sem getur tryggt meðferð við augnsjúkdómum fyrr en áður var kleift. Tæknin nýtist við meðhöndlun á sykursýki, bláæðastíflum í sjónhimnu og gláku og metur einnig áhrif lyfja- og leysimeðferðar. Sprotafyrirtækið Oxymap var stofnað til þróa áfram lausnir sem tengjast þessum rannsóknum.

Á myndinni eru Árni Þór Árnason framkvæmdastjóri Oxymap, Kristín Ingólfsdóttir rektor og Guðmundur Þorgeirsson, forseti læknadeildar.
Fyrir aftan standa Valdemar Olsen, fjármálastjóri Oxymap, Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Einar Stefánsson og Jón Atli Benediktsson.


24.9.2009 06:46


deila á facebook
Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...

Tækifæri í samstarfi um...

Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.

Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá...