Nýr verkefnisstjóri alþjóðamála við Hjúkrunarfræðideild

Sigrún Ólafsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri alþjóðamála við Hjúkrunarfræðideild

Sigrún lauk BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 2003 og MA gráðu í heimspeki og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Helsinki árið 2007.

Í Finnlandi starfaði hún meðal annars við alþjóðadeild Alþingis þar sem hún kom að undirbúningi fyrir þing Norðurlandaráðs í Helsinki árið 2008. Þá kenndi hún við Háskólann í Helsinki og hafði  yfirumsjón í íslenskri tungu, menningu og sögu. Með námi þá starfaði hún við landkynningu í skólum og öðrum stofnunum og sinnti íslenskukennslu og ýmissi upplýsingavinnu.

Sigrún hefur umsjón með gesta- og styrkjamálum fyrir Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík 2009. Því starfi lýkur í lok september. Þangað til mun Hjúkrunarfræðideild deila starfskröftum hennar með Alþjóðlegri kvikmyndahátíð.

Sími Sigrúnar er 4299 og netfang sio31@hi.is.


11.9.2009 11:11


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.