Nýr gestaprófessor við umhverfis-og byggingarverkfræðideild

Við undirritun samningsins í fundarherbergi háskólaráðs, talið frá vinstri: Prófessor Ragnar Sigbjörnsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði, prófessor Apostolos S. Papageorgiou, nýr gestaprófessor við Háskóla Íslands, prófessor Sigurður M. Garðarsson, deildarforseti umhverfis- og byggingarverkfræðideildar, dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Dr. Apostolos S. Papageorgiou hefur verið ráðinn gestaprófessor við umhverfis- og byggingarverkfræðideild á fagsviðinu tæknileg jarðskjálftafræði og jarðskjálftaverkfræði. 

Prófessor Papageorgiou er með doktorsgráðu í byggingarverkfræði, með sérgreinarnar jarðskjálftaverkfræði og tæknilega jarðskjálftafræði, frá Massachusetts Institute of Technology (MIT). Hann er einnig með BSc og MSc gráðu í byggingarverkfræði frá sama skóla, ennfremur hefur hann MSc gráðu í vélaverkfræði, með aflfræði sem sérgrein, frá MIT. Hann hlaut hin virðulegu Richard Lee Russel verðlaun frá MIT árið 1976 sem viðurkenningu fyrir framúrskarandi vísindarannsóknir.

Dr. Papageorgiou er professor við byggingarverkfræðideild háskólans í Patras. Sú deild hlaut nýlega öndvegisstyrk úr 7. rammaáætlun Evrópusambandsins fyrir rannsóknir á sviði byggingarverkfræði og jarðskjálftaverkfræði. Áður en hann flutti til Patras var hann prófessor við Háskólann í Buffaló, ríkisháskóla New York, Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað við Rensselaer Polytechnic Institute (RPI) og MIT í New York ríki.

Prófessor Papageorgiou er heimsþekktur og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar á sviði jarðskjálftaverkfræði og tæknilegrar jarðskjálftafræði. Sérstaklega ber að nefna upptakalíkön fyrir jarðskjálfta sem hann hefur þróað svo og töluleg líkön til þess að meta staðbundin áhrif. Hann hefur einnig, svo dæmi sé tekið, unnið að gerð jarðskjálftakorts fyrir Anchorage í Alaska. Þá bar hann einnig ábyrgð á gerð þeirra jarðskálftaforsendna sem notaðar voru í rannsókna- og tilraunaaðstöðu MCEER (Multidisciplinary Center for Earthquake Engineering Research) í Buffalo.

Markmið með ráðningu Dr. Papageorgiou í starf gestaprófessors er að efla og styrkja kennslu og rannsóknir á sviði jarðskjálftaverkfræði og tæknilegrar jarðskjálftafræði við Háskóla Íslands. Starfsaðstaða hans verður við rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands á Selfossi.


2.6.2009 14:51

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.