Nýr gestakennari við Hjúkrunarfræðideild
Háskóli Íslands, Hjúkrunarfræðideild og doktor Þóra B Hafsteinsdóttir hafa nú undirritað samning um akademískt gestastarf Þóru við Hjúkrunarfræðideild. Samkvæmt samningnum gegnir Þóra starfi gestadósents. Þóra hefur starfað við háskólasjúkrahúsið í Utrecht í Hollandi sem klínískur hjúkrunarrannsakandi frá árinu 1994 en hún lauk þaðan doktorsgráðu í hjúkrun árið 2003. Hún var lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á árunum 2006 til 2009. Þóra gegndi á þessu tímabili starfi forstöðumanns fræðasviðs endurhæfingarhjúkrunar, sem hún mun gera áfram.
10.7.2009 08:06



