Nýnemadagar nálgast - upplýsingavefur opnaður
Á vefsetri stúdenta, student.is, hefur nú verið onaður upplýsingavefur fyrir nýnema. Á vefnum hægt að finna allar helstu upplýsingar sem nýnemar þurfa áður en þeir hefja nám við Háskóla Íslands. Þar má nefna upplýsingar um tölvuþjónustu, félagslíf, stúdentaíbúðir, hvernig skráningu í námskeið er breytt og ýmislegt fleira. Tilgangurinn með vefnum er að auðvelda nýnemum að taka fyrstu skrefin í Háskóla Íslands.
Fjölbreytt dagskrá á nýnemadögum
Háskólinn leggur kapp á að taka vel á móti nýnemum sínum og verður fjölbreytt dagskrá í boði á vegum fræðasviða, deilda og skólans alls. Deildir skólans hefja kennslu á mismunandi tímum, allt frá 17. ágúst til 31. ágúst og raðast því nýnemakynningar deildanna á það tímabil. Á nýnemakynningum deilda og fræðasviða eru nýnemar eru kynntir fyrir starfsfólki og kennurum og nemendafélögin koma oftar en ekki að dagskránni.
Sameiginleg dagskrá fyrir alla nýnema verður vikuna 31. ágúst til 4. september og þá verður ýmislegt í boði. Stúdentaráð býður upp á daglegar gönguferðir um háskólasvæðið þar sem nýnemum verður kennt að rata og finna helstu staðina og ýmsar þjónustustofnanir kynna starfsemi sína. Þá verða fjölbreytt skemmtiatriði á Háskólatorgi, t.d. kemur Sprengjuhöllin fram á tónleikum fimmtudaginn 3. september. Allar upplýsingar um dagskrána má finna á nýopnuðum upplýsingavef nýnema.
Vikunni lýkur með Stúdentadögum
Dagana 3. og 4. september fara hinir árlegu Stúdentadagar fram. Stúdentaráð Háskóla Íslands skipuleggur dagana í samvinnu við fjölmarga aðila. Þá keppa nemendafélög sín á milli í spurningakeppni og knattspyrnu, grillaðar verða pyslur og ýmislegt fleira. Vikunni lýkur svo með nýnemaballinu, en þar eru allir velkomnir, ekki bara nýnemar.
Allir nýnemar eru hvattir til þess að kynna sér dagskrá Nýnemadaganna vel og taka þátt í öllum viðburðum.
18.8.2009 11:42



