Nýjar reglur um inntökuskilyrði í næringarfræði



Til að hefja nám í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Stúdentar eru teknir inn á 2. misseri náms í næringarfræði á grundvelli samkeppnisprófs sem haldið er í lok 1. misseris í samræmi við reglur háskólans um samkeppnispróf.
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs til BS-prófs í næringarfræði takmarkast við töluna 30.

Þær námsgreinar sem kenndar eru á 1. misseri í BS-námi í næringarfræði gilda sem samkeppnispróf, við val nemenda verður meðaleinkunn þeirra lögð til grundvallar við fjöldatakmörkun.

Nánar um inntöluskilyrði í Matvæla- og næringarfræðideild