Námsstyrkir- MSc í endurnýjanlegum orkufræðum með sérhæfingu á vatnsaflsbraut

Í boði eru fimm námsstyrkir til meistaranáms í endurnýjanlegum orkufræðum (MSc in Renewable Energy Science).

Styrkirnir eru veittir af Landsvirkjun og nema fullum skólagjöldum við RES. Þeir eru veittir nemendum Háskóla Íslands sem hyggja á sérhæfingu á vatnsaflsbraut við RES skólaárið 2010 - 2011.

RES býður upp á eins árs alþjóðlegt meistaranám (90 ECTS) í vistvænni orkunýtingu og endurnýjanlegum orkugjöfum. Námið er ætlað nemendum sem hafa lokið BSc námi í verkfræði, raungreinum eða sambærilegum greinum. Boðið er upp á meistaranámið í nánu samstarfi við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands, sem útskrifa nemendur RES og veita hina formlegu meistaragráðu.

Nánari upplýsingar eru að finna á slóðinni: www.res.is


9.10.2009 13:52


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.