Mikilvægt að gefa sér tíma til að bæta umhverfið

Í tilefni Dags jarðarinnar þann 26. apríl sl. tóku nemendur í Umhverfis- og auðlindafræði í HÍ sig til og hreinsuðu sorp á griðastað fugla í Vatnsmýrinni. Svæðið er nú lokað almenningi þar sem hreiðurgerð stendur yfir en á öðrum árstíma er þetta afar falleg gönguleið sem nemendur nýta sér til að njóta náttúrunnar á milli kennslustunda. Því miður safnast rusl í vatnsfarveg votlendisins, ógnar lífríkinu og mengar svæðið.

Fyrsti opinberi Dagur jarðarinnar var haldinn í Bandaríkjunum árið 1970. Tilgangurinn er að auka meðvitund fólks um umhverfi sitt. Á Degi jarðarinnar er fólk hvatt til að taka til hendinni í þágu umhverfis síns eins og að hirða rusl.  „Græna kynslóðin" er fólk sem hefur myndað tengslanet um Dag jarðarinnar og stendur nú fyrir tveggja ára átaki sem mun ná hámarki næsta ár, á 40 ára afmæli Dags jarðarinnar.

Á sama hátt og „kynslóðin mikla" beitti sér í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og hratt af stað verulegum þjóðfélagsbreytingum er „Græna kynslóðin" venjulegt fólk sem hefur einsett sér sem einstaklingar og hópur að láta til sín taka, bæta umhverfið í víðum skilningi og finna lausnir á vandamálum eins og loftslagsbreytingum og vatnsskorti.

Nemendahópurinn í umhverfis- og auðlindafræði segir það afar mikilvægt að gefa sér tíma til að bæta umhverfið. Auk þess sé gott fyrir sálina að horfa á svæði sem maður hefur tekið þátt í að hreinsa eins og þau gerðu í Vatnsmýrinni. Með ólíkindum sé hversu mikil áhrif nokkrar manneskjur geti haft á umhverfi sitt á aðeins þremur tímum.  Jafnótrúlegt var magnið af sorpi sem þau hirtu: tólf fullir ruslapokar og kenndi í þeim ýmissa grasa, má nefna skauta, hjólkoppa, stuðara, hlíf af varadekki aftan af jeppa og númeraplötu.

Skilaboð þessa framtakssama nemendahóps til meðborgara sinna eru skýr: Vinsamlegast munið að umgangast samfélagið af virðingu og ef þið hafði áhuga, prófið þá að fá nokkra vini með ykkur í að hirða upp rusl einhversstaðar. Þið getið haft áhrif ef þið viljið.


13.5.2009 17:09


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.