Metnaðarfull stefna um rannsóknir við menntavísindasvið HÍ



Vísindaráð menntavísindasviðs hefur mótað stefnu um rannsóknir við menntavísindasvið Háskóla Íslands 1. júlí 2008 - 30. júní 2013.
 
Menntavísindasvið setur sér að efla menntarannsóknir til að skapa þekkingu sem nýtist við að þróa íslenskt fræðslu- og menntakerfi svo það geti verið í fremstu röð. Á sama hátt mun sviðið efla rannsóknir á sviði uppeldis- og menntamála og taka þátt í alþjóðlegri þekkingarsköpun um efnið.

Til að ná markmiði um framúrskarandi rannsóknir mun menntavísindasvið styrkja bolmagn rannsakenda, bæta rannsóknarumhverfi, bæta stoðþjónustu, efla samstarf innanlands, auka alþjóðlegt samstarf og efla fjármögnun til rannsókna og þróunar.
Í stefnunni er einnig sett fram aðgerðaráætlun sem menntavísindasvið mun fylgja til að ná markmiðum stefnunnar.
 
Aðalmenn í stjórn Vísindaráðs eru Jóhanna Einarsdóttir formaður, Guðrún V. Stefánsdóttir, Jón Torfi Jónasson, Júlíus K. Björnsson og Steinunn Gestsdóttir.
 
Stefnan hefur verið gefin út í bæklingi sem liggur frammi á þjónustuborði á Háskólatorgi og í þjónustuveri menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
 
Bæklingurinn í pdf