Mentorverkefnið Vinátta

Hefur þú áhuga á að vinna með börnum, vera leiðbeinandi og fyrirmynd sem aðstoðar yngri og óreyndari aðila við að víkka sjóndeildarhringinn? Þá er mentorverkefnið Vinátta gullið tækifæri fyrir þig!

Skólaárið 2009-2010 stendur nemendum við Háskóla Íslands til boða að sækja um þátttöku í námskeiðinu Mentorverkefnið Vinátta Fél. 413G. Í námskeiðinu taka háskólanemar grunnskólabarn á aldrinum 7-10 ára að sér og verja þremur stundum á viku með barninu yfir skólaárið. 

Námskeiðið er metið til 6 eininga fyrir vinnu og verkefnaskil og nánari upplýsingar er að finna í kennsluskrá HÍ.

Upplýsingar eru einnig veittar í símum 551-9873 og 770-0123 eða á netfanginu vinatta@vinatta.is. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu verkefnisins.


11.9.2009 08:31


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...