Matvælatæknifræði - ný námsleið til BS-prófs



Mikilvægi matvælaframleiðslu og matvælaiðnaðar, sem byggir á eiginleikum og gæðum íslenskra afurða og fagmennsku á heimsmælikvarða hefur aukist á allra síðustu tímum. Á sama tíma hafa orðið miklar framfarir og þróun í framleiðslu tækja og hugbúnaðar fyrir matvælaiðnað og kröfur um hollustu og öryggi í matvælaiðnaði margfaldast. Af þessum sökum er aukin þörf fyrir fólk með breiða og hagnýta menntun, sem hefur vilja og getu til að takast á við nýsköpun og stjórnun í matvælavinnslu og skyldum greinum. 

Til að svara þessari þörf býður Matvæla- og næringarfræðideild upp nám í matvælatæknifræði frá og með haustmisseri 2009. Um er að ræða þriggja ára nám, 180 einingar, til BS-prófs. Nám í matvælatæknifræði er hagnýt blanda raunvísinda, viðskiptafræði og verkfræði. Náið samstarf verður við Matís ohf og munu nemendur meðal annars vinna verkefni þar, sem og hjá matvælafyrirtækjum.

Upplýsingar um uppbyggingu námsins

Rafræn umsókn