Málþing Orators

Málþing Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, verður haldið
miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12:00 í stofu 101 í Lögbergi, húsi
lagadeildar Háskóla Íslands.

Fjallað verður um svokölluð gengislán eða lán í erlendri mynt.

Á síðustu árum voru lán, sem bundin voru við dagsgengi erlendra
gjaldmiðla, fyrirferðarmikil. Spurningar hafa vaknað um lögmæti þessara
lána, einkum gagnvart lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Á málþinginu verða rædd helstu lögfræðilegu álitamálin í tengslum við
þessi lán. Frummælendur verða:

Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður hjá Landslögum,

Björn Þorri Viktorsson, hæstaréttarlögmaður hjá Lögmönnum Laugardal,

Eyvindur G. Gunnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands.

_

LEX lögmannsstofa er aðalstyrktaraðili fræðastarfs Orators.


12.11.2009 13:37


deila á facebook
Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...