Málþing Mentors: Á annað hundrað gestir
Mentor, félag grunnnema í félagsráðgjöf stóð fyrir málþingi 25.febrúar sl. undir yfirskriftinni "Áhrif efnahagsbreytinga á fjölskyldur og börn". Á annað hundrað manns hlýddu á erindi málþingsins.
Málþingið hófst á ávarpi félags- og trygginamálaráðherra, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Alls voru fjórir fyrirlesarar, Katja Forssén fór yfir reynslu Finna í fjölskyldumálum í kjölfar finnsku kreppunnar á níunda áratugnum.
Árni Sigfússon bæjarstjóri kynnti úrræði fyrir fjölskyldur með börn sem Reykjanesbær hefur staðið fyrir í kjölfar efnahagshrunsins. Páll Ólafsson
félagsráðgjafi fór yfir áherlsuatriði í barnaverndarstarfi í kjölfar efnahagsþrenginga, og loks kynnti María Rúnarsdóttir félagsráðgjafi og verkefnisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar starfsemi aðgerðateymis sem starfrækt er.
Félagsmála- og tryggingamálaráðherra vakti athygli á mikilvægi Rannsóknaseturs um barna- og fjölskylduvernd og vakti athygli samstarfi setursins við Velferðarvaktina. Sjá nánar frétt á Vísi

