Málstofa- State aid to banks in the financial crisis
Í kjölfar alvaralegustu fjármálakreppu í sögu Evrópu, hafa flest Evrópusambandsríki kynnt fjölmargar aðgerðir, sem miða að því að styrkja fjármálakerfi og koma í veg fyrir að kreppan hafi frekari áhrif á efnahag einstakra þjóða. Flestar tillögur ganga út á að bæta innistæðutryggingar, taka upp ríkisábyrgðir, veita ríkislán, yfirtaka eignir og ríkisvæða fyrirtæki og stofnanir. Í þessu felst ákveðin mótsögn því Evrópusambandsríkjum ber að fara að reglum um ríkisstyrki, sem banna eða hamla mjög möguleika á slíkum styrkjum til banka- og fjármálastofnana.
Lagastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir málstofu fimmtudaginn 4. Mars kl. 12:15 í fundarsal Þjóðminjasafnsins þar sem Prof. Carl Baudenbacher, forseti EFTA- dómstólsins fjallar um það hvernig evrópsk löggjöf tekur á því þegar ríkisstyrkir eru veittir og verið er að bregðast við áföllum vegna efnahagsvanda ríkja í kjölfar kreppu.
Baudenbacher gerir grein fyrir því hvernig tekist hefur verið á við veikleika alþjóðlegra fjármálamarkaða með mismunandi löggjöf og hvert hlutverk EFTA-dómstólsins er í því sambandi.
Fundarstjóri er Elvira Mendéz-Pinedo, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.
5.3.2010 09:16




