Lyfjafræðideild veitir viðurkenningar vegna námsárangurs

Lyfjafræðideild hefur frá haustmisseri 2007 veitt viðurkenningu þeim lyfjafræðinemum sem lokið hafa MS og BS prófi með bestum námsárangri á næstliðnu háskólaári. Ári síðar var ákveðið að verðlauna einnig þann nema á öðru ári BS náms, sem lokið hefði fyrsta námsári með bestum árangri.

Viðurkenningar vegna háskólaársins 2008-2009 voru veittar á Degi lyfjafræðinnar, sem haldinn var 7. nóvember sl. Þau sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni voru

  • Páll Þór Ingvarsson, fyrir besta árangur á MS prófi. Páll lauk MS prófi með ágætisárangri.
  • Ásdís Hjálmsdóttir, fyrir besta árangur á BS prófi.
  • Ingólfur Birgisson, fyrir besta árangur á fyrsta ári BS náms

Á myndinni eru Þórdís Kristmundsdóttir, forseti Lyfjafræðideildar, Ásdís Hjálmsdóttir, Ingólfur Birgisson og Aðalheiður Pálmadóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Páll Þór Ingvarsson var staddur erlendis og gat ekki veitt viðurkenningunni viðtöku.

Handhafar viðurkenningar Lyfjafræðideildar vegna námsárangurs frá upphafi 


10.11.2009 13:53

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.