Laufey Steingrímsdóttir gestaprófessor við Hí



Dr. Laufey Steingrímsdóttir prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands skrifaði þann 10. mars sl, undir samning um starf gestaprófessors á fræðasviði Matvæla- og næringarfræðideildar Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Samningurinn er sá fyrsti sem gerður er milli háskólanna eftir að skrifað var undir víðtækan samstarfssamning þeirra í millum 3. desember 2008.

Deildum Háskóla Íslands er heimilt, í umboði rektors, að bjóða völdum einstaklingum akademísk gestastörf. Þeir sem valdir eru til að gegna slíkum störfum skulu ótvírætt uppfylla sömu kröfur um faglegt hæfi og gerðar eru til þeirra sem starfa við kennslu og sjálfstæðar rannsóknir við skólann.

Markmið samningsins við Laufeyju er að styrkja kennslu og rannsóknir í næringarfræði. Haustið 2008 hófst kennsla í næringarfræði til BS prófs við Matvæla- og næringarfræðideild og sótti fjöldi nemenda um inngöngu í námið.

Rannsóknir í næringarfræði eru öflugar við deildina og hafa kennarar og meistara- og doktorsnemar aðstöðu á Rannsóknastofu í næringarfræði sem staðsett er á Landspítala við Hringbraut.

Laufey leiðbeinir nú þegar við deildina og hefur samstarf við kennara. Mikill fengur er að samstarfi við Laufeyju og Landbúnaðarháskólann fyrir framtíðastörf á fræðasviðinu og gefur það færi á að flétta saman rannsóknir í frumframleiðslu landbúnaðarafurða og næringu og heilsu.

Auk Laufeyjar skrifuðu deildaforsetarnir Inga Þórsdóttir og Áslaug Helgadóttir undir samninginn, Inga fyrir hönd Háskóla Íslands og Áslaug fyrir Landbúnaðarháskólann. Jón Atli Benediktsson aðstoðarrektor staðfesti samninginn fyrir hönd gæðanefndar Háskóla Íslands.