Laganemar kepptu í málflutningi
Laganemar Háskóla Íslands öttu kappi á fjölum Hæstaréttar laugardaginn 6. mars þegar málflutningskeppni Orators, félags laganema í HÍ, fór fram. Tvö lið reyndu fyrir sér og var dómurinn m.a. skipaður hæstaréttardómara og tveimur kennurum lagadeildar. Um var að ræða hitamál, nefnilega meiðyrðamál á hendur blaðamanni. Margir áhugasamir laganemar og aðrir góðir gestir fylgdust með málflutningnum.
Keppnin fór þannig fram að fyrir hádegi sótti annað liðið en hitt varðist. Hlutverkum var svo snúið við eftir hádegi. Huglægt mat dómara réði svo hvort liðið stóð uppi sem sigurvegari. Skemmst er frá því að segja að málflutningsmaður Orator var valinn Gunnlaugur Helgason, en hann fór fyrir liði II. Þrátt fyrir góðan málflutning Gunnlaugs fór lið I hins vegar með sigur af hólmi.
Í sigurliðinu voru Friðrik Árni Friðriksson, Guðný Hjaltadóttir, Guðrún Edda Finnbogadóttir, Gunnar Jónsson og Vilhjálmur Þór Svansson. Lið II var hins vegar skipað, auk Gunnlaugs, Hilmari Þorsteinssyni Ólafi Agli Jónssyni og William Frey Huntingdon-Williams.
Í dóminum voru Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari, Helgi I. Jónsson og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjórar, auk tveggja kennara lagadeildar, þeirra Eiríks Jónssonar og Kristínar Benediktsdóttur.
10.3.2010 08:57




