Kynferðisbrot - Dómabók eftir Ragnheiði Bragadóttur

Kynferðisbrot - Dómabók eftir Ragnheiði Bragadóttur

Bókaútgáfan Codex hefur nú gefið út ritið Kynferðisbrot - Dómabók eftir Ragnheiði Bragadóttur. Riti þessu er ætlað að gefa tæmandi lýsingu á dómaframkvæmd Hæstaréttar í kynferðisbrotamálum á 17 ára tímabili, frá ársbyrjun 1992 til ársloka 2008. Dómarnir eru flokkaðir eftir þeim lagaákvæðum sem ákært er fyrir og reifaðir eftir fyrirfram gefnum viðmiðunum. Gerð er grein fyrir sakarefni og ákæruatriðum hvers dóms, málavöxtum, framburði ákærðra og vitna og öðrum atriðum sem máli skipta við sönnun. Fjallað er um rök fyrir sekt eða sýknu og gerð grein fyrir þeim sjónarmiðum sem koma til athugunar við ákvörðun refsingar.
Bókin er fyrst og fremst fræðirit, ætluð þeim sem fjalla um kynferðisbrotamál í störfum sínum, til kennslu í refsirétti og afbrotafræði og sem grundvöllur frekari rannsókna. Hún nýtist þó einnig sem öflugt uppflettirit og er aðgengileg öllum þeim sem láta sig varða þetta svið réttarins, bæði lærðum og leikum.
Nánari upplýsingar um ritið má finna á heimasíðu Bókaútgáfunnar Codex.


1.3.2010 08:40


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.