Kristín Erla Harðardóttir ráðin forstöðumaður Menntavísindastofnunar
Kristín Erla Harðardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands. Kristín Erla er með MA-próf í mannfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú doktorsnám í mannfræði. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands frá árinu 2005 og sem verkefnisstjóri við Félagsvísindastofnun frá árinu 2003. Undanfarin ár hefur hún m.a. séð um ráðgjöf Félagsvísindastofnunar til kennara í Félagsvísindadeild við innlendar og erlendar styrkumsóknir.
Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Lög um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni: http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.
Kristín Erla byrjar í hlutastarfi en verður komin í fullt starf þann 1. maí næstkomandi. Hún hefur aðstöðu í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, á fyrstu hæði í Enni.
8.3.2010 14:47




