Á deildarfundi Uppeldis- og menntunarfræðideildar 15. janúar síðastliðinn fór fram kjör deildarforseta og formanna námsbrauta fyrir tímabilið 1. júlí 2010 til 30. júní 2012. Núverandi deildarforseti Hanna Ragnarsdóttir var endurkjörin til næstu tveggja ára. Börkur Hansen var einnig endurkjörinn varadeildarforseti.
Á fundinum voru formenn námsbrauta deildarinnar kosnir úr hópi fastráðinna kennara einstakra brauta:
Menntunarfræði
Ólafur Páll Jónsson formaður
Guðný Guðbjörnsdóttir varaformaður
Menntastjórnun og matsfræði
Börkur Hansen formaður
Steinunn Helga Jónsdóttir varaformaður
Sérkennslufræði
Dóra S. Bjarnason formaður
Guðrún Kristinsdóttir varaformaður
Sálfræði í uppeldis- og menntavísindum
Sigrún Aðalbjarnardóttir formaður
Steinunn Gestsdóttir varaformaður
5.2.2010 15:38
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...
Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Hagfræðitilraunir á...
Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...
Rannsaka áhrif bólusetninga
Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður nálægt einni milljón evra,...
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.