Kerfislíffræði í Nature Biotechnology

Rannsóknahópur undir forystu Bernharðs Pálssonar prófessors við Kaliforníuháskóla í San Diego og við Kerfislíffræðisetur H.Í. hefur birt í tímaritinu Nature Biotechnology allsherjar kort sem sýnir starfræna uppbyggingu erfðamengis bakteríunnar Escherichia coli  (Cho et al.2009).

Eric Knight rannsakandi hjá Kerfislíffræðisetri er einn a meðhöfundum Bernharðs. Þetta kort er hið fyrsta sinnar tegundar og er mikilvægur grunnur að frekari rannsóknum á heildarstjórnun gena og ferla í bakteríufrumum og í þróun líkana til að skýra og spá fyrir um þessa ferla og öðlast þannig dýpri skilning á lífverunni.


9.11.2009 13:18


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...