Jens Evald gestaprófessor við lagadeild
Jens Evald prófessor við lagadeild Háskólans í Árósum gegnir stöðu gestaprófessors við lagadeild Háskóla Íslands. Jens er sérfræðingur á sviði réttarheimspeki og mun taka þátt í kennslu meistaranámskeiðsins réttarheimspeki við lagadeild Háskóla Íslands. Í námskeiðinu er fjallað um helstu álitaefni sem leitað hefur verið svara við undir merkjum réttarheimspeki, einkum spurninguna ,,hvað eru lög?" og álitamál henni tengd, svo sem aðferðafræðilegan grundvöll lögfræði, tengsl laga og siðferðis og eðli dómstarfa. Lagadeild Háskóla Íslands býður Jens Evald velkominn til starfa.
6.10.2009 10:07



