Jákvæð könnun um afdrif nemenda Lagadeildar HÍ

Gerð var könnun meðal nemenda sem útskrifast hafa með meistara- eða kandídatspróf frá Lagadeild Háskóla Íslands á árunum 2005 til 2009. Markmiðið var að kanna afdrif nemenda, hvað þeir hafa tekið sér fyrir hendur í kjölfar útskriftar og hvernig námið við Lagadeild HÍ hefur nýst þeim í starfi og áframhaldandi námi.

Samantekt helstu niðurstaðna könnunar

  • Yfirgnæfandi meirihluti svarenda, eða 95%, taldi það hafa gengið vel að fá starf að loknu námi. Sjö svarendur sögðust ekki hafa fengið starf að námi loknu, en af þessum sjö stunda fjórir framhaldsnám erlendis og einn hóf fæðingarorlof strax í kjölfar útskriftar sinnar.
  • Langflestir svarendur voru í launuðu starfi þegar könnunin var gerð, eða 96%, og nær allir þeirra í fullu starfi. Mikill meirihluti svarenda starfar við stjórnsýslustörf á vegum ríkis eða sveitarfélaga (40%) eða á lögmannsstofu (34%). Tæp 10% svarenda starfa í fjármálakerfinu.
  • Tæpur helmingur svarenda (47%) hafði aflað sér réttinda til að starfa sem héraðsdómslögmaður, þar af fleiri karlar en konur. Af þeim 89 svarendum sem höfðu aflað sér hdl. réttinda taldi yfirgnæfandi meirihluti (97%) að námið við Lagadeild HÍ hafi búið sig vel undir prófið til héraðsdómslögmannsréttinda. Þrír töldu námið hvorki hafa undirbúið sig vel né illa og enginn taldi það hafa búið sig illa undir prófið.
  • Að sama skapi taldi yfirgnæfandi meirihluti svarenda (92%) þekkingu sína úr laganáminu í HÍ nýtast vel í starfi sínu. Þrettán svarendur sögðust hvorki nýta þekkinguna vel né illa og tveir svarendur sögðust nýta hana frekar illa.
  • Tíu svarendur sögðust hafa lokið framhaldsnámi erlendis (5%) og átta svarendur eru erlendis í framhaldsnámi um þessar mundir (4%). Mikill meirihluti þeirra telur að nám við Lagadeild Háskóla Íslands hafi búið sig vel undir framhaldsnámið, eða 14 svarendur (78%). Fjórir svarendur töldu námið í HÍ hvorki hafa búið sig vel né illa undir framhaldsnámið og enginn taldi námið við HÍ hafa nýst illa í framhaldsnámi. Jafnframt voru þeir svarendur sem ekki leggja stund á eða hafa lokið framhaldsnámi spurðir hvort þeir stefni á áframhaldandi nám. Meirihluti þeirra (61%) stefnir á framhaldsnám erlendis.

Hér má finna könnunina í heild sinni (.pdf)


6.1.2010 11:14


deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.