Íslenski keppandinn mætir með líkan að gervitaug

Kári Már Reynisson, 17 ára stúdent frá Menntaskólanum Hraðbraut, hélt til Parísar nú í morgun til að keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni ungra vísindamanna. Um 40 lönd taka þátt í keppninni að þessu sinni, sem er nú haldin í 21.skipti.

Auk Evrópulanda senda Bandaríkin, Kína og Japan fulltrúa til keppninnar. Kári Már keppir þannig við unga og bráðefnilega vísindamenn frá þremur heimsálfum. Verkefni Kára Más, „Líkan að gervitaug“ bar sigur úr býtum í Landskeppni ungra vísindamanna sem fram fór við Háskóla Íslands í vor.

Í umsögn dómnefndar í vor kom m.a fram að verkefni Kára sé fullt af hugmyndaauðgi og útfærsluhugmyndir hans frumlegar. Kári Már var aðeins 12 ára þegar áhugi hans kviknaði á þróun gervitaugar sem hugsanlega gæti hjálpað þeim sem orðið hefðu fyrir alvarlegum taugaskemmdum.

Allar götur síðan hefur hann þróað hugmyndina og aukið við þekkingu sína. Kári Már kynnti verkefnið sitt í Menntaskólanum Hraðbraut í gær við góðar undirtektir nemenda en „líkanið að gervitauginni“ byggir á hugmynd um hönnun tækis sem á að geta lesið taugaboð í enda taugar sem hefur farið í sundur, flytja þau ákveðna vegalengd og koma boðunum til skila til líffæris s.s. vöðva eða inn í fjarlægari taugaenda.

Í verkefninu eru lagðar eru fram hugmyndir að því hvernig tengja má saman lifandi taugavef og dauðan hlut úr ólífrænum efnum og gerviefnum. Keppnin Ungir Vísindamenn er liður í áætlun Evrópusambandsins sem er ætlað að efla tengsl vísinda og samfélags.

Markmið keppninnar er að efla hæfni ungs fólks til að vinna að rannsóknarverkefnum og stuðla að frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda. Leiðbeinandi Kára Más við sigurverkefnið hefur verið Hilmar Pétursson, kennari við Menntaskólann Hraðbraut. Úr Menntaskólanum Hraðbraut í gær þar sem Kári Már kynnti verkefnið sitt „Líkan að gervitaug.“


10.9.2009 23:28

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.