Íslenska þjóðin treystir Háskóla Íslands
Frá árinu 1993 hefur farið fram árleg könnun á vegum fyrirtækisins Capacent á trausti almennings til helstu stofnana íslensku þjóðarinnar. Frá upphafi hefur Háskóli Íslands notið mests eða næstmests trausts og mælist það nú 76%. Aðeins lögreglan mælist nú með heldur meira traust eða 81%.
Traust til Háskóla Íslands skapast ekki síst af skýrri framtíðarsýn skólans og stefnu hans. Undanfarin ár hefur Háskólinn sótt fram. Hann hefur hert kröfur um árangur og lagt viðurkennda alþjóðlega mælikvarða á starf skólans. Háskólinn hefur jafnframt lagt mikla áherslu á að stækka skólann og styrkja hann með því að leita samstarfs við virta erlenda háskóla.
Þrátt fyrir smæð Háskóla Íslands í alþjóðlegum samanburði er hann eftirsóttur til samstarfs. Það má rekja til vísindaárangurs skólans og einnig til afbragðsárangurs nemenda frá Háskóla íslands í framhaldsnámi við erlenda háskóla. Hvoru tveggja hefur opnað fyrir samstarf við stofnanir í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu, og skapað þannig nemendum Háskólans tækifæri til að taka hluta af námi sínu við þessar stofnanir án þess að greiða skólagjöld.
Næst á eftir Háskóla Íslands í þjóðarpúlsi Capacent kemur heilbrigðiskerfið sem nýtur trausts 70% landsmanna, 57% segjast bera mikið traust til embættis sérstaks saksóknara, en fjármála- og bankakerfið rekur lestina í hinni árlegu mælingu sem kallast þjóðarpúls Capacent.
Nánar um þjóðarpúls Capacent:
http://www.capacent.is/Frettir-og-frodleikur/Frettir/Frett/2010/03/05/Al...
11.3.2010 16:55



