Íslensk rannsókn á sviði hjarta- og heilasjúkdóma ein sú mikilvægasta 2009
Rannsókn sem Vilmundur Guðnason prófessor við læknadeild Háskóla Íslands stýrði að hluta hefur verið valin ein af tíu mikilvægustu rannsóknum ársins 2009 á sviði hjarta- og heilasjúkdóma. Að valinu standa Bandarísku hjartaverndarsamtökin (American Heart Association).
Rannsóknin var unnin í samstarfi Hjartaverndar, evrópskra og bandarískra vísindamanna og stýrði Vilmundur íslenska rannsóknateyminu en hann er jafnframt forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar.
Rannsóknin leiddi í ljós gen sem stýra blóðþrýstingi hjá mönnum. Grein um rannsóknina birtist í tímaritinu Nature Genetics í maí í fyrra. Bandarísku Hjartaverndarsamtökin velja árlega tíu bestu rannsóknirnar á sviði hjarta- og æðasjúkdóma og heilaáfalla.
Í fréttatilkynningu samtakanna frá 22. desember síðastliðnum kemur fram að rannsóknirnar sem komu til álita spanni víðfeðmt svið frá grunnvísindum til klínískra rannsókna. Þetta er því afar mikill heiður og mikilvæg viðurkenning á því starfi sem Hjartavernd hefur staðið fyrir í 40 ár. Þetta sannar jafnframt mikilvægi þeirra rannsókna sem Hjartavernd sinnir á sviði hjarta og æðasjúkdóma.
4.1.2010 14:59



