Inngangsvika fyrir meistaranema í viðskiptafræðideild

Kæri meistaranemi

Kennsla í Meistaranámi í Viðskiptafræðideild HÍ hefst þann 24. ágúst með Inngangsviku.

Vegna mikils fjölda nemenda sem hefja meistaranám í haust hefur verið ákveðið að skipta nemendum í tvo hópa og verður hvor hópur í tvo daga.
Nemendur í Fjármálum fyrirtækja, Reikningshaldi og endurskoðun og Skattarétti og reikningsskilum mæta 24. og 25. ágúst. Nemendur í Mannauðsstjórnun, Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum, Stjórnun og stefnumótun og Viðskiptafræði mæta 26. og 27. ágúst. 

Kennsla fer fram í Háskólatorgi-HT102, frá kl. 9:10 –17 báða dagana og lýkur á léttum nótum síðdegis þriðjudaginn 25. ágúst fyrir fyrri hópinn en fimmtudaginn 27. ágúst fyrir seinni hópinn.

Þátttaka í inngangsviku gildir eina einingu og er skylduþátttaka fyrir alla meistaranema sem teknir eru inn í meistaranámið haustið 2009. Þeir nemendur sem hafa ekki tök á að mæta verða í staðinn skila verkefni sem kynnt verður síðar.

Í inngangsviku verður fjölbreytt dagskrá, fyrirlestrar og verkefnavinna sem hugsað er sem undirbúningur í akademískum vinnubrögðum og ekki síður til að gefa nemendum tækifæri á því að kynnast hver öðrum sem og kennurum deildarinnar.

Nemendur eru beðnir um að senda nemendaskrá (nemskra@hi.is) beiðni um skráningu í námskeiðið, nafn og kennitala þarf að fylgja. Númer námskeiðsins er VIÐ142F Inngangsvika.

Námskeið fellur niður
Vakin er athygli á því að námskeiðið VIÐ136F Nýja hagkerfið verður ekki kennt í vetur en námskeiðið VIÐ109F Atvinnuvegir verður kennt og er mælt með því að nemendur taki það í staðin.

Með kveðju og bestu óskum um gott gengi í meistaranáminu.


3.7.2009 14:11

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.