Hvatningarsjóður Félags lífeindafræðinga veitir kandídötum styrki
Við brautskráningu kandídata laugardaginn 20. júní sl. voru brautskráðir fyrstu nemendurnir með viðbótardiplóma í lífeindafræði. Boðið er upp á nám til diplómaprófs í lífeindafræði að loknu BS prófi og gerir þessi menntun kandídötum kleift að sækja um starfsréttindi sem lífeindafræðingar. Hyggi þeir á frekara nám nýtist það þeim jafnframt sem fyrra árið í meistaranámi og bæta við sig 60 eininga rannsóknaverkefni. Fyrstu nemendurnir eru nú innritaðir á seinna námsár til meistaraprófs og áætlað að brautskrá fyrstu kandídatana með MS próf í lífeindafræði frá Háskóla Íslands næsta vor.
Félag lífeindafræðinga stofnaði hvatningarsjóð árið 2007 í þeim tilgangi að styrkja nemendur fyrir framúrskarandi námsárangur og til að hvetja nemendur til frekara náms. Fyrstu styrkirnir voru veittir úr sjóðnum 23. júní sl. og bauð félagið nýútskrifuðum nemendum til móttöku af því tilefni. Arna Antonsdóttir formaður félagsins kynnti þeim sögu lífeindafræðinga hér á landi sem og hugmyndafræði og sögu félagsins. Sigrún Stefánsdóttir fulltrúi sjóðstjórnar veitti Sigríði Selmu Magnúsdóttur 150.000 króna styrk fyrir frábæran árangur í diplómanámi og Pálínu Fanneyju Guðmundsdóttur sömu upphæð fyrir frábæran árangur á BS prófi.
24.6.2009 13:20



