Húsfyllir hjá Félagsvísindasviði í Odda á laugardag


Gríðarlegur fjöldi kynnti sér námsframboð Háskóla Íslands fyrir næsta skólaár á laugardaginn var. Allt grunnnám við Háskóla Íslands var þá kynnt á Háskólatorgi, í Gimli og í Odda. Nemendur og kennarar úr öllum deildum og námsleiðum skólans svöruðu spurningum sem brunnu á áhugasömum gestum. Á Félagsvísindasviði kynntu Lagadeild, Félagsráðgjafadeild, Félags- og mannvísindasvið, Hagfræðideild, Stjórnmálafræðideil og Viðskiptafræðideild námsleiðir í grunnnámi. En þess má geta að kynning á framhaldsnámi mun fara fram þann 25. mars. 

Nemendur Félagsvísindasviðs kynntu námsleiðir á sviðinu en þeir bökuðu samtímis því vöfflur í gríð og erg. Sverrir Norland, söng og spilaði á allar sínar munnhörpur og kassagítar á meðan gestir gæddu sér á ljúffengum vöfflum. Þá spiluðu Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Bjarni Guðmundsson fyrir gesti og gangandi á kaffistofu Félagsvísindasviðs en þau spila saman í dúettinum Gullbrá.


22.2.2010 11:46

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.