Holdafar, hreyfing og heilsutengd lífsgæði eldri aldurshópa

Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir hlaut í gær viðurkenningu rannsóknarráðs Menntavísindasviðs árið 2008-2009 fyrir meistaraprófsverkefnið Holdafar, hreyfing og heilsutengd lífsgæði eldri aldurshópa – Sex mánaða íhlutunarrannsókn. Rannsóknarráð Menntavísindasviðs veitir árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi meistaraprófsverkefni. 

Viðurkenningin var veitt við setningu málþings Menntavísindasviðs Föruneyti barnsins – velferð og veruleiki sem nú stendur yfir. Leiðbeinandi Guðrúnar var Erlingur Jóhannsson prófessor, sérfræðiálit veitti Pálmi Jónsson dósent og og öldrunarlæknir og prófdómari var Júlíus Björnsson forstöðumaður Námsmatsstofnunar.

Formaður rannsóknarráðs, Steinunn Gestsdóttir, afhenti Guðrúnu viðurkenninguna og í máli hennar kom fram að verkefni Guðrúnar væri umfangsmikið og lýsti metnaði nemanda og leiðbeinanda. Styrkur þess fælist fyrst og fremst í því að hér væri um að ræða afar heildstætt verk. Guðrún sýndi trausta þekkingu á fyrri rannsóknum á sviðinu og nýtti þær vel. Hér væri um vandaða vísindalega rannsókn að ræða.

Einnig vakti sérstaka athygli að rannsóknin er gerð í góðum tengslum við nærsamfélagið þar sem hún var framkvæmd – eldri borgarar í nærliggjandi sveitarfélögum tóku þátt í þjálfun sem má telja víst að stuðli að auknum lífsgæðum þeirra – það átti einnig við þá sem voru í samanburðarhópi, sem er ánægjulegt. Slík tengsl á milli rannsókna í háskóla og samfélagsins eru mikilvæg og vonir standa til að niðurstöðurnar verði nýttar til markvissra aðgerða sem muni stuðla að auknu líkamlegu og andlegu heilbrigði eldri borgara á Íslandi.

Rannsóknarráði Menntavísindasviðs er ætlað að styðja við og efla rannsóknir við sviðið í því augnamiði að þróa íslenskt mennta- og fræðslukerfi og stuðla að alþjóðlegri þekkingarsköpun. Mikilvægur hluti þeirra rannsókna sem fram fer við sviðið eru rannsóknir nemenda, bæði á meistara- og doktorsstigi. Rannsóknarráð veitir verðlaun fyrir afburðagott meistaraverkefni í því skyni að vekja athygli á mikilvægi framlags nemenda til rannsókna á þeim sviðum sem tengjast fræðasviði Menntavísindasviðs og hvetja til áframhaldandi framúrskarandi rannsókna.

Í viðurkenningarskyni hlaut Guðrún ritið  Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007 sem ritstýrt var af Lofti Guttormssyni og kom út á síðasta ári.


30.10.2009 15:24

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.